Tuesday, October 11, 2011

Elsku Monki, velkomin til London

Monki Wanted !! (og guð, þetta á eftir að vera hættulegt! HM, Forever 21 og nú Monki)








Monki er staðsett í Selfridges (department store) og því var hún nú frekar lítil, en sæt..en það er svosem í lagi...alveg hægt að shoppa online ;)

Ég uppgötvaði í sömu ferð nýja HM búð, special edition HM búð, með ótrúlega fallegum vörum!!!
Endaði með loðfeld-kraga og Snog úr þeirri búð (alveg að koma haust hér, jeijj)..ó hvað ég á eftir að heimsækja hana oft!

xxx-B

Sunday, October 9, 2011

Body shop goodys!

Sælar! á að vera löööngu búin að blogga en steingleymi því alltaf!  
Annars er farið að hausta og þá fer húðin á mér í klessu, þornar upp og verður soldið skemmtileg! Nota kókósolíuna á slæmum dögum en annars þessar Body Shop vörur! 

Þetta er besti handáburður ever! 

Einnig eru E-vítamín vörurnar æðislegar! Nota þetta dagkrem, létt og fljótt að þorna.

Keypti maskann um daginn og hann er fáranlega góður, silki smooth á 10 min! 

Kuldakveðja Guðbjörg! 

Tuesday, September 20, 2011

xxx


Love frá Lundúnarborg

Bergey
xxxx

Saturday, September 17, 2011

Elsku laugardagur

Þessi mánuður hefur einkennst af ME TIME..mememememe
Svo gaman að hafa R hinum megin á hnettinum (eða þannig!)

Er askoti heimakær þessa dagana (ég elska að "eiga"mitt eigið heimil)..
fyrir utan það mikilvægasta sem ég er búin að vera að vinna í síðustu daga þá er ég að elska að hafa kósý tíma í nýju íbúðinni, hanga heima..horfa á tv, elda og borða góðan mat, hlusta á tónlist, lesa bækurnar mínar...........

Dagurinn í dag er búin að vera súper kósý...
súkkulaði ostakaka
Rauðvínsglas
kjúllasalat
kaffi
internet grúsk
Kafa í World Travel Atlas sem Rob gaf mér í jólagjöf 
(sem er by the way nánast búin að vera í kassa síðan um jólin!)

og búin að hlusta á þessar yndislegu systur í allan dag

First Aid Kit
Sænskar systur, fæddar 1990 og 1993. Búnar að vera í uppáhaldi hjá mér í svolítinn tíma. Þær eru að spila í London 1 nóv ásamt Lykke Li (sem er einnig í uppáhaldi) en auðvitað er uppselt! Man það næst..að það borgar sig að kaupa miða mörgum mörgum mörgum mánuðum fyrir tónleikana! 




Í kvöld er það svo X factor  og ég fæ bara ekki nóg af þeim þætti 


Þessi er í uppáhaldi ásamt nokkrum öðrum...algjört æði!!

Svo skemmir ekki að hafa menn eins og Gary (auðvitað meina ég þann til vinstri...HOT!) í þessum þætti! ;) 

Vonandi eru þið að njóta helgarinnar elskurnar mínar..væri alveg til í að hafa ykkur í kósý time hér hjá mér 
B-xxxxx






Friday, September 16, 2011

Rauðhærði albínó selurinn....

Þetta litla krútt fannst í Rússlandi í vikunni...freaky, en samt svo ógó krúttlegur



En greijið litla rassgatið fékk svo sannarlega að finna fyrir því aðvera öðruvísi. Enginn vildi leika við hann og  meira að segja mamma hans vill ekkert með hann hafa :(((
Einnig er hann hálfblindur, sem útskýrir skrítnu augun.


:(((  enginn vill leika við litla snúllann

Góðu fréttirnar eru þó að honum hefur verið bjargað af samtökunum Russian dolphinarium.

ússí músss..mig langar að knúsa hann! ;)

B
xxxxx


Wednesday, September 14, 2011

NYC Fashion Week 11-13 sept

 Úllala, meira skemmtilegt af Fashion week NYC! 
Flestar sýningarnar eru tilbúnir á rauða dregilin, sérstaklega Marchesa línan og Carolina Herrea. Renee Zellweger á örugglega eftir að sjást í þessum græna (p.s. Renee elskar Carolina). Kim Kardashian "Humphries" mætti á Vera Wang sýninguna í ball-búning frá Vera reyndar en alltof overdressed! 
Hlakka annars til að sjá hvaða snót á eftir að víga fyrstu kjólana í Oscar De La Renta línunni! Þeir fá 10/10 í minni bók!






Thom Browne! Hilarious lína- líklegast eftir að sjá Lady Gaga í einhverju frá honum á næstunni.

                            
Okey Bæ! 
-Guðbjörg-

Monday, September 12, 2011

Mánudagsblogg

Stundum er svo hallærislegt að vera túristi...en samt svo gaman

LOL

Mánudagurinn alveg að vera búinn, njótið kvöldisns!
kv. Bergey xx