Tuesday, October 11, 2011

Elsku Monki, velkomin til London

Monki Wanted !! (og guð, þetta á eftir að vera hættulegt! HM, Forever 21 og nú Monki)








Monki er staðsett í Selfridges (department store) og því var hún nú frekar lítil, en sæt..en það er svosem í lagi...alveg hægt að shoppa online ;)

Ég uppgötvaði í sömu ferð nýja HM búð, special edition HM búð, með ótrúlega fallegum vörum!!!
Endaði með loðfeld-kraga og Snog úr þeirri búð (alveg að koma haust hér, jeijj)..ó hvað ég á eftir að heimsækja hana oft!

xxx-B

Sunday, October 9, 2011

Body shop goodys!

Sælar! á að vera löööngu búin að blogga en steingleymi því alltaf!  
Annars er farið að hausta og þá fer húðin á mér í klessu, þornar upp og verður soldið skemmtileg! Nota kókósolíuna á slæmum dögum en annars þessar Body Shop vörur! 

Þetta er besti handáburður ever! 

Einnig eru E-vítamín vörurnar æðislegar! Nota þetta dagkrem, létt og fljótt að þorna.

Keypti maskann um daginn og hann er fáranlega góður, silki smooth á 10 min! 

Kuldakveðja Guðbjörg! 

Tuesday, September 20, 2011

xxx


Love frá Lundúnarborg

Bergey
xxxx

Saturday, September 17, 2011

Elsku laugardagur

Þessi mánuður hefur einkennst af ME TIME..mememememe
Svo gaman að hafa R hinum megin á hnettinum (eða þannig!)

Er askoti heimakær þessa dagana (ég elska að "eiga"mitt eigið heimil)..
fyrir utan það mikilvægasta sem ég er búin að vera að vinna í síðustu daga þá er ég að elska að hafa kósý tíma í nýju íbúðinni, hanga heima..horfa á tv, elda og borða góðan mat, hlusta á tónlist, lesa bækurnar mínar...........

Dagurinn í dag er búin að vera súper kósý...
súkkulaði ostakaka
Rauðvínsglas
kjúllasalat
kaffi
internet grúsk
Kafa í World Travel Atlas sem Rob gaf mér í jólagjöf 
(sem er by the way nánast búin að vera í kassa síðan um jólin!)

og búin að hlusta á þessar yndislegu systur í allan dag

First Aid Kit
Sænskar systur, fæddar 1990 og 1993. Búnar að vera í uppáhaldi hjá mér í svolítinn tíma. Þær eru að spila í London 1 nóv ásamt Lykke Li (sem er einnig í uppáhaldi) en auðvitað er uppselt! Man það næst..að það borgar sig að kaupa miða mörgum mörgum mörgum mánuðum fyrir tónleikana! 




Í kvöld er það svo X factor  og ég fæ bara ekki nóg af þeim þætti 


Þessi er í uppáhaldi ásamt nokkrum öðrum...algjört æði!!

Svo skemmir ekki að hafa menn eins og Gary (auðvitað meina ég þann til vinstri...HOT!) í þessum þætti! ;) 

Vonandi eru þið að njóta helgarinnar elskurnar mínar..væri alveg til í að hafa ykkur í kósý time hér hjá mér 
B-xxxxx






Friday, September 16, 2011

Rauðhærði albínó selurinn....

Þetta litla krútt fannst í Rússlandi í vikunni...freaky, en samt svo ógó krúttlegur



En greijið litla rassgatið fékk svo sannarlega að finna fyrir því aðvera öðruvísi. Enginn vildi leika við hann og  meira að segja mamma hans vill ekkert með hann hafa :(((
Einnig er hann hálfblindur, sem útskýrir skrítnu augun.


:(((  enginn vill leika við litla snúllann

Góðu fréttirnar eru þó að honum hefur verið bjargað af samtökunum Russian dolphinarium.

ússí músss..mig langar að knúsa hann! ;)

B
xxxxx


Wednesday, September 14, 2011

NYC Fashion Week 11-13 sept

 Úllala, meira skemmtilegt af Fashion week NYC! 
Flestar sýningarnar eru tilbúnir á rauða dregilin, sérstaklega Marchesa línan og Carolina Herrea. Renee Zellweger á örugglega eftir að sjást í þessum græna (p.s. Renee elskar Carolina). Kim Kardashian "Humphries" mætti á Vera Wang sýninguna í ball-búning frá Vera reyndar en alltof overdressed! 
Hlakka annars til að sjá hvaða snót á eftir að víga fyrstu kjólana í Oscar De La Renta línunni! Þeir fá 10/10 í minni bók!






Thom Browne! Hilarious lína- líklegast eftir að sjá Lady Gaga í einhverju frá honum á næstunni.

                            
Okey Bæ! 
-Guðbjörg-

Monday, September 12, 2011

Mánudagsblogg

Stundum er svo hallærislegt að vera túristi...en samt svo gaman

LOL

Mánudagurinn alveg að vera búinn, njótið kvöldisns!
kv. Bergey xx


Sunday, September 11, 2011

NYC Fashion Week 8-10 sept.

Spring ready to wear 2012 sýningarnar voru að byrja! Gleði gleði!
Þannig ég eyði þó nokkrum stundum að skoða style.com þessa dagana. Hér er brot af því sem að stendur upp úr hjá mér frá New York Fashion Week.

  

NAHM - svo cute!

Jason Wu! Þessi kjóll minnir mig svo á Oscar De La Renta kjólinn sem að Carry fékk frá rússanum í Sex and the City! Bleika fluffið! u get?

Christian Cota - mjá- 



Að lokum krúsídúllu hönnuðirnir af Costello Tagliapietra, þeir Jeffrey Costello og Robert Tagliapierta

Bear hug 
-Guðbjörg-

Friday, September 9, 2011

Dreamer

Ef peningar væru ekki vandamálið þá væri ég að fjárfesta í drauma ferðinni  akkurt núna!

Á lonely föstudagskvöldi sekk ég mér í staðinn í lonely planet ferðahandbækurnar mínar og læt mig dreyma um eitt og annað.....


....Koh Tao í Taílandi. Lítil paradísareyjar sem ég mun einn daginn fara til. Læra kafa, liggja á ströndinni, snorkla, drekka kokteil, njóta lífsins, þarf einhvað meira? Nei held ekki







....Chaing Mai Norður Taíland. Dreymir um að fara þangað aftur og þá til þess að læra hugleiðslu, kenna ensku í fjallaþorpi, læra Taílenska matargerð og jafnvel reyna að læra Taílensku.









..... Kína Kína Kína Kína...ég hafði aldrei verið með einhvern sérstakan áhuga á Kína, fyrr en á síðustu dögum (ég er græn af öfund útí Rob þessa dagana) hef ég ekki hugsað um annað! 

mig langar að ganga upp The Great Wall of China



fara til Chengdu og heimsækja sætu Pöndurnar í Chengdu Panda Breeding Research Center

Er til einhvað meira krúttlegra??




..Týnast í Hong Kong og borða furðulegan mat (þó færi ég alls ekki svo langt að smakka Hund og kött!! *hrollur)


oooooggggggg og og og og ég gæti haldir endalaust áfram!!!!

En fyrst ég get ekki ferðast um hnöttin (strax), þá hef ég ákveðið að hefja loks leit mína af hinum fullkomna hnetti (loksins get ég leyft mér að kaupa slíkan þar sem að það vantar klárlega decoration í nýju íbúðina;) 


Svona brúnleitur er klárlega í uppáhaldi hjá mér eins og er
Síðan væri ég alveg til í einn annan sem mætti vera fönkí





Any way

kv. B xxx



.

Asus tölvueigendur, það er myndavél í tölvunni ykkar sem heitir LIFEFRAME! Ég vissi það ekki, en eftir uppfærslu skaust það upp á skjáinn og allt í einu varð talvan mín aðeins skemmtilegri!

Í blússandi gleði minni smellti ég nokkrum myndum!





-Guðbjörg!-

Thursday, September 8, 2011

London fun

Held það sé vel við hæfi að koma með eina túrista London færslu þar sem að ég fékk þennan snilling í heimsókn í síðustu viku!


Við áttum sko yndislegan tíma  <3
Gerðum allt það helsta sem gera á í helgarferð í London

  • Verslunarleiðangur
  • Túristarölt (í alltof góðu veðri)
  • Partý djamm
  • Meiri verslunarleiðangur
  • Kósí heima að borða take away
Og svooo mikið meira hægt að gera, en gafst ekki tími, en geymum það þangað til næst ;)

Covent garden

 Fengum okkur góðan lunch á þessum krúttlega stað í Covent Garden 

Green Park

 Buckingham Palace 


House of Parliament. Þinghúsið

Like

Súper ánægðar með þennan góða sólardag

Thelma og stóri Benni
Stærðsta pulsa sem ég hef fengið mér

London Eye

 Tilbúnar á djammið í nýju forever 21 fötunum okkar ;)









Síðasti dagurinn í London:(
Takk fyrir mig Thelma


kv. B xxx